Takið af ykkur skóna ! Hvað ert að bóna.

FLOSIÞessi setning kemur upp í hugann þegar maður les fréttir um að Flosi Ólafsson leikari sé látinn eftir bílslys fyrr í vikunni. Ógleymanlegur leikur hans sem húsvörður í félagsheimili úti á landi í Stuðmanna myndinni Með allt á hreinu er það fyrsta sem ég man eftir honum. En alveg síðan hefur Flosi verið í miklu uppáhaldi hjá mér.

Þó svo að ekki hafi ég þekkt Flosa persónulega þá er maður samt sorgmæddur við þessar fréttir. Flosi þessi mikli æringi og gleðigjafi hefur í svo langan tíma verið fjölskylduvinur á heimilum landsmanna. Hann hefur með húmor sínum og góðri frásagnargáfu glatt landsmenn í áratugi. Hans verður sárt saknað nú þegar hann er farinn í sína hinstu ferð.

Blessuð sé minning Flosa Ólafssonar.

Já sjáiði það ekki......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Algjörlega sammála þér Golli.

Blessuð sé minning Flosa Ólafssonar

Níels A. Ársælsson., 25.10.2009 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband