Nú er að rífa sig upp af rassgatinu !

IMG_0144_edited 

Og mæta á næsta föstudagskvöld 13 febrúar klukkan 19.15 og hvetja strákana í KFÍ. Þeir hafa verið að spila feikivel undanfarið og unnið síðustu 5 leiki sína í 1. deildinni og 6 af síðustu 7 leikjum.

Þeir urðu fyrstir til að leggja topplið Hamars í vetur en Hamar hafði unnið 11 leiki í röð þegar þeir komu til Ísafjarðar og töpuðu. Í síðustu 3 leikjum hafa strákarnir unnið 3 efstu liðin. Þess vegna segi ég við þig lesandi góður. Mættu og hvettu þitt lið til sigurs og eigðu frábæra stund í Jakanum á Torfnesi næsta föstudagskvöld. Það skiptir okkur miklu máli að fá stuðning þinn nú.

Áfram KFÍ.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband