Maðurinn með hattinn.

sen5_5283Mikið var nú gaman að sjá ritstjóra eins af helstu miðlum landsins sem telur sig vafalaust meiripokamann sýna sinn innri mann á bb.is í gær. Eftir mjög góða grein Gísla H Halldórssonar þar sem komið var við kaunin á ritstjóranum, og honum vafalaust fundist hann vera lítill undir stóra hattinum, setur hann fram eitthvað það aumasta sem sést hefur á prenti frá honum í langan tíma, og þó er hann gamall blaðamaður af DV þar sem ekki hafa verið ástunduð allra bestu vinnubrögðin hingað til.

Það væri best fyrir okkur vestfirðinga ef að þessi ágæti ritstjóri skrifaði um eitthvað annað en okkur, og ef hann á annað borð ætlar að skrifa um málefni Ísafjarðarbæjar eða vestfjarða þá væri ágætt hjá honum að kynna sér málefnin áður en hann byrjar að ausa úr viskubrunni sínum.

Það er augljóst af grein hans í gær að það gerir hann ekki.

Rakalaus þvættingur......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband