29.2.2008 | 16:09
Ætli við könnumst ekki við þetta sama vandamál.
Er ekki þarna komið fyrir fjármálafyrirtækjunum eins og þeim fyrirtækjum og einstaklingum, á vestfjörðum sem hafa reynt að fá þessi sömu fyrirtæki, til að leggja fjármagn í atvinnulífið hér á svæðinu. Þeir hafa nú ekki verið svo æstir að setja peninga í hugmyndir sem upp hafa komið á landsbyggðinni. Þeir vilja ekki einu sinni veð í kofunum okkar hvað þá meira.
Skemmst er að minnast kalkþörungaverksmiðjunnar á Bíldudal sem ekkert Íslenskt Fjármálafyrirtæki vildi setja pening í. Banki í Skotlandi hins vegar sá tækifæri í þessu og fjármagnaði verksmiðjuna.
Þessir fjármálamenn verða að hugsa í báðar áttir.....
Vandi hve illa gengur að laða að erlenda fjárfesta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.