Þetta líf.

eokMig setti hljóðan í gær er ég fékk þær fréttir að Einar Oddur hefði orðið bráðkvaddur fyrr um daginn á göngu á fjallið Kaldbak. Með Einari er genginn einn öflugasti þingmaður þjóðarinnar allrar, og hans skarð verður ekki fyllt í bráð. Fyrir okkur vestfirðinga er missirinn mikill því Einar barðist hart fyrir málefnum landsbyggðarinnar og kom fram með sínar skoðanir og stóð við það sem hann sagði burtséð frá stefnu eða forystu Sjálfstæðisflokksins. Hans verður sárt saknað í þeirri baráttu sem nú fer í hönd við skerðingu á veiðiheimildum.

Ég sendi Sigrúnu Gerðu, Brynhildi, Kristjáni og Teiti og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Einars Odds Kristjánssonar.


mbl.is Einar Oddur Kristjánsson látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband