Ruglað lið.

Þetta lið er kolruglað. Þessar mótmælaaðgerðir eru löngu hættar að skipta nokkru máli. Það eina sem þetta fólk fær út úr þessu er umfjöllun í fjölmiðlum, og það er akkúrat það sem það sækist eftir. Þess vegna eiga fjölmiðlar að taka sig saman og hunsa þessar fréttir og þá hættir þetta lið að vesenast þetta. Það er fáránlegt að vera með þetta í beinni útsendingu á RÚV. Þessir mótmælendur þrífast á umfjöllun og þess vegna eiga fjölmiðlar að láta þá eiga sig.

Höldum áfram að nýta þær auðlindir sem við eigum.....


mbl.is Mótmælendur Saving Iceland loka Snorrabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Afhverju ertu ekki með þessu mótmælaliði Jón Frímann? Með þeim áttu greinilega heima

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.7.2007 kl. 22:48

2 Smámynd: Haukur Viðar

Þetta er eins og að gagnrýna stuðningsmann Manchester United fyrir að vera ekki í liðinu sjálfu. Ég held það sé nú í lagi að styðja hitt og þetta án þess að taka beinan þátt.

Haukur Viðar, 14.7.2007 kl. 23:19

3 Smámynd: halkatla

mér hlýnar um hjartaræturnar mínar köldu af því að Jón Frímann er að verja þetta fólk útum allt ef hann gerir það er amk eitthvað jákvætt við þetta - þó að ég sjái það ekki alveg í augnablikinu. Ég dáist að kaldhæðninni í fyrrihluta athugasemdarinnar hans en ég skil samt ekki alveg hvernig hún tengist því sem ég sá í sjónvarpsfréttum kvöldsins, úff, ég vildi svo innilega að ég hefði ekki séð þetta... en að öðru leyti er ég alls ekki sammála bloggfærslunni hér um að það eigi að hætta að veita þjóðinni upplýsingar!!!

halkatla, 15.7.2007 kl. 01:03

4 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Þetta er skítapakk.  Sjá þetta á RUV í kvöld.  Ótrúlegt hyski sem hvorki virðir lög né eignir annara.  Þessi talsmaður er svo gjörsamlega í öðrum heim, guð má vita hvað hann er að reykja.  Friðsamleg mótmæli segir hann.  Jón Frímann á heima með þessu liði.

Örvar Þór Kristjánsson, 15.7.2007 kl. 02:06

5 Smámynd: Haukur Viðar

Ég get sagt þér það Örvar, að hann reykir ekki neitt. Það sem meira er, að það eru góðar líkur á að hann annist þig ef þú lendir í því að þurfa að fara upp á bráðamóttöku. Þú dæmir fólk eftir útliti þeirra og skoðunum og það er ekki rétt.

Haukur Viðar, 15.7.2007 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband