Skip dagsins

2067_VEBJORN_IS14

Þetta er vélbáturinn Vébjörn ÍS 14 sem Samvinnufélag Ísfirðinga gerði út. Félagið gerði út marga báta sem kallaðir voru samvinnubátarnir og einnig Birnirnir, og voru tæplega 40 tonn. Þeir voru gerðir út á útilegu á línu á vetrum oftast undir jökli, og síld fyrir norðan land á sumrin. Þeir hétu m.a Auðbjörn, Gunnbjörn. Sæbjörn og Vébjörn. Ingólfur afi minn og alnafni var á Vébirni á síld í nokkrar vertíðir fyrir miðja síðustu öld, Þá var skipstjóri Halldór Sigurðsson frá Ísafirði en hann er langafi Gunnars mágs míns. Mynd af þessum bát hefur hangið fyrir ofan símaborðið úti á bökkum hjá ömmu og afa í Bolungarvík síðan ég man eftir mér og gerir enn.

Svartur sjór af síld.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband