Er Villi kannski ekki svo góður.(uppfært)

AAKZALHCA9V6MBLCA307ZG0CAK1PFD7CA3NNYAPCA43TJFXCAZ47QIBCA3PEYRTCAEXEAM2CASK3ZQ1CAC7GYO7CA7FVFJWCA1X2JLTCAIG8FY7CA3JM72FCAKTQPYCCAJFAFGBCA1ZFYYDCATU51PJCAQMBYT9Eftir að hafa fylgst með umræðum og fréttum um þetta samrunaferli þá get ég ekki annað en sagt að framganga Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar er fyrir neðan allar hellur. Það að þetta skuli vera gert í skjóli myrkurs og án þess að samverkafólk hans í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna fái nokkuð að vita fyrr en eftir að gjörningurinn var afstaðinn er stórundarlegt, vægt til orða tekið.

Kjörinn fulltrúi fólks í Reykjavík hefur ekkert leyfi til að leggja þessa peninga í áhættu fjárfestingafyrirtæki án þess að ráðfæra sig við eigendurna fyrst. Orkuveitan á ekki að vera að vasast í svona málum, hún á fyrst og fremst að sjá til þess að fólk hafi heitt og kalt vatn ásamt rafmagni. Það er vitað að fyrirtæki sem stjórnað er af lýðræðislega kjörnum fulltrúum annars vegar og einkafyrirtæki hinsvegar rekast ekki vel saman.

A91WVMGCAKE0106CAL52BM1CA08UFRXCA19W0ILCAQ1IG3ECAYTD0AWCAWWTLAZCA1NUQZ7CAIDBSCICAMC98P4CAE34JOFCAVMZ9R2CA6YLY81CAQOKCP5CA8FR1OLCARALAIVCA5VDQJWCAJZBNWCCAL8KQ7WHlutafjárkaup starfsmanna eru líka ámælisverð. Hversvegna hafa ekki allir starfsmenn jafnan kauprétt. Sumir fá að kaupa fyrir 100-300 þúsund á meðan aðrir fá að kaupa fyrir 10-30 milljónir. Hvers vegna fá ekki bara allir að kaupa í þessu fyrirtæki allavega allir Reykvíkingar, þeir eiga jú fyrirtækið ásamt Akurnesingum og  Borgfirðingum. Menn geta ekki farið með almanna fé eins og þeir eigi það sjálfir, ekki heldur borgarstjórinn í Reykjavík.

Björn Bjarnason talar um það á heimasíðu sinni að minnihlutinn í stjórn orkuveitunnar fá litlar upplýsingar og að málinn séu ekki rædd í borgarráði og borgarstjórn. Það eru ekki nokkur vinnubrögð að fulltrúar fólksins fái ekki að fylgjast með hvað fer fram í stjórn fyrirtækis í þeirra eigu. Björn talar um að hann hafi búist við breytingum með nýjum mönnum. Það er greinilegt að Vilhjálmur vinnur alveg eins og það fólk sem hann gagnrýndi hvað mest á síðasta kjörtímabili.

AQCNYELCAF7K359CA0FTX3JCAYL77SQCAMTL8S5CAWPEZN1CA4Z5F4PCAPX024SCAA3G1YLCA8Q9W10CANQWKW0CAN7U5K0CAIP9H8ACA5ADW8KCAY58FAHCAIOL31KCAVB8ET7CAIMD47KCAXJE8ULCAN6UKEGMér finnst að framkoma Vilhjálms í þessu máli sé döpur og hvernig hann hunsar samstarfsfólk sitt er honum til skammar. Mér fyndist ekkert athugavert við að sjálfstæðismenn í Reykjavík skipti um fulltrúa í stjórn orkuveitunnar. Held að þeir ættu jafnvel að skipta bara um borgarstjóra líka. Vilhjálmur fær örugglega vinnu hjá félögum sínum í fjármálageiranum. Þá getur hann farið með þeirra peninga eins og honum sýnist.

Spilling í Orkuveitunni.....


mbl.is Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins á fund Geirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælir

Það er spurning hvað Sjallarar muni gera. Til að losna við spillingarstimpilinn, þá þarf að skipta um borgarstjóra.

mbk.

Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband