Össur úr sambandi.

Ekki veit ég hvar Össur Skarphéðinsson hefur verið undanfarin ár, úr því að hann getur haldið því fram blákalt að heimamenn og Orkubúið hafi ekki staðið sig í að beita þrýstingi til úrbóta í raforkumálum.

Ég man hreinlega ekki eftir pólitískum fundi síðustu 10 árin þar sem ekki hefur verið talað um þessi mál. Það er skemmst frá því að segja  að þeir pólitíkusar sem hafa setið þessa fundi, sama úr hvaða flokki þeir voru, voru allir af vilja gerðir til að skoða málið svo að þetta kæmist í lag, en samt er sama ófremdarástandið enn.

Það er giska léttvægt hjal hjá iðnaðarráðherra að koma með enn eitt bloggið þar sem hann skítur í allar áttir en hittir engan fyrir nema sjálfan sig. Það gleður mig hinsvegar mikið að Dýrafjarðarsonurinn hugsar hlýlega til átthaganna. Það verður væntanlega til þess að hringtenging rafmagns verður komin á von bráðar.

Eða ekki......

 


mbl.is Fagnar Össuri sem bandamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband