Nei svínastían er hinu megin í húsinu !

IMG_0814Herbergi eins fjölskyldumeðlims hér í túngötunni er orðið ansi illa leikið eftir alla playmó og legó leikina undanfarið. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið reynt til að fá einkasoninn til að taka til þá er miklu betra að mamma eða stóra systir geri það.

Í gærkvöld sagði ég við hann þegar ég bauð honum góða nótt að þetta væri ekki hægt lengur nú yrði hann að taka til, herbergið væri orðið eins og svínastía. En hann hefur greinilega hlustað of mikið á Kardimommubæinn og svaraði um hæl.

Nei svínastían er hinum megin í húsinu.

Snillingur.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Margrét Marzellíusardóttir

Frábær svona gullkorn, skarpur strákur!

Sjálf get ég ekki beðið eftir gullkornum frá mínu kríli.

Bestu kveðjur

Helga Margrét Marzellíusardóttir, 29.4.2008 kl. 23:13

2 Smámynd: Katrín Dröfn Markúsdóttir

hehehe snillingur !!

Katrín Dröfn Markúsdóttir, 30.4.2008 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband