Sálin 20 ára.

SalinÁ föstudagskvöldið verða 20 ára afmælistónleikar Sálarinnar hans Jóns míns í Laugardalshöll. Það eru líka 20 ár síðan ég fór á ball með Sálinni í fyrsta skipti. Það var í Krúsinni inn í Ljóni þar sem  byggingavöruverslunin Núpur er til húsa núna.

Síðan urðu böllin ansi mörg og staðirnir líka. Bolungarvík, Njarðvík, Reykjavík, Ísafjörður, Hnífsdalur, Ýdalir í Aðaldal og síðast en ekki síst 1929 á Akureyri þar sem maður fór á nokkur ansi hreint mögnuð Sálarböll á besta skeiði Sálarinnar veturinn 1991-1992.

Það þarf varla að taka það fram að ég er aðdáandi og mæti að sjálfsögðu í Höllina á föstudagskvöld.

Allt er á tjá og tundri......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Ösp Þorleifsdóttir

Sjáumst í Höllinni, maður lætur sig ekki vanta þó ég sé ekki orðin það öldruð að hafa farið á ball í Ljóninu... vissi ekki einu sinni að Krúsin hafi verið þar!

Kristín Ösp Þorleifsdóttir, 12.3.2008 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband