Óveður, sér ekki á milli augna.

Það er blindbylur á Suðureyri þessa stundina. Guðbjartur á Vagninum sá mikli snillingur sagði einhverju sinni um svona veður að það sæist ekki á milli augna. það á vel við í verstu kviðunum núna. Þá er ekkert annað að gera en að horfa bara á Enska boltann og leyfa veðrinu að hamast fyrir utan gluggann.

Sýnist Liverpool vera á góðri leið með að gera enn eitt jafnteflið, fjandinn hafi það.

Bolti og bylur......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Jónsson

Það var nú einn snillingur hér á Krók, Árni Brúni, eins og hann var kallaður, vörubílstjóri, sem keyrði í svo miklum þreifandi byl að hann þurfti að skrúfa niður rúðuna og keyra með hausinn opinn alla leið út í Fljót!!

Karl Jónsson, 31.1.2008 kl. 08:52

2 Smámynd: Karl Jónsson

En já þetta með Liverpool, eigum við að ræða það eitthvað?

Karl Jónsson, 31.1.2008 kl. 08:52

3 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Sæll Karl.

Mér sýnist ekki þurfa að hafa mörg orð um þetta Liverpool lið í augnablikinu. Þeir eru í frjálsu falli.

Ingólfur H Þorleifsson, 31.1.2008 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband