Vetur konungur.

rjúpaÞað er kominn vetur hér á Suðureyri. Rok og skafrenningur. Við sem höfum gaman af því að ganga til rjúpna kætumst yfir þessu hreti nú rétt áður en veiðitímabilið hefst. Þetta fær hana til að koma ofan úr fjöllunum til að leita að æti. Rjúpan kætist sjálfsagt líka því að það er mun erfiðara að sjá hana þegar allt er orðið hvítt, og því jafnast leikurinn.

Veturinn er fínn.....


mbl.is Færð á heiðum að þyngjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband