Burt með rasistana

Mikið vildi ég að þetta yrðu niðurstöður þingkosninganna 12 mai. Þá þyrfti  maður ekki að hlusta á rasistana í Frjálslyndaflokknum næstu árin. Þessir menn hafa ekkert erindi á alþingi Íslands.

Gefum rasistunum frí 12 mai.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Ingileifur.

Ertu að tala við mig ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.4.2007 kl. 15:16

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Svona áður en ég byrja tek ég fram að ég er ekki flokksbundin og er ein af þessum villiráfandi sauðum sem hefur enn ekki græna glóru um hvar x-ið lendir í maí. En mér leikur forvitni á að vita Ingólfur hvort ''rasismi'' Frjálslynda flokksins er það eina sem þú hefur á móti honum? Einnig langar mig að biðja þig um að útskýra fyrir mér hvernig það getur talist rasismi að vilja hafa einhverja stjórn á flæði útlendinga inn í landið? Ég er í alvöru að spyrja eins og sá sem ekkert veit, því ég er hreinlega ekki vel að mér í þessum málefnum.

Jóna Á. Gísladóttir, 22.4.2007 kl. 15:33

3 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Sælar stúlkur.

Guðrún, ef að þú ert á sömu skoðun og Jón Magnússon þá er ég að tala við þig, en ef þú ert á sömu skoðun og Lýður Árnason þá er ég ekki að tala við þig. Jóna, ég er ekkert á móti því að það sé fylgst með flæði útlendinga en þegar talað er um Ísland fyrir Íslendinga þá er það rasismi og ekkert annað. Varðandi restina af þeirra málflutningi þá er að mínu viti ekki glóra í sjávarútvegsstefnu þeirra sem gengur út á að leyfa frjálsar veiðar upp að 30 tonnum og úthluta sóknardögum á restina eftir eigin hugdettum. Verð að viðurkenna að ég hef nú ekki kynnt mér þeirra mál svo gjörla að öðru leyti.

Ingólfur H Þorleifsson, 22.4.2007 kl. 15:51

4 Smámynd: Karl Jónsson

Það stefnir í að þessi innflytjendamálflutningur Frjálslyndra verði eitt mesta pólitíska harakiri sem íslenskir flokkar með fótfestu hafa framkvæmt í seinni tíð að minnsta kosti. Þetta má sjá í skoðanakönnunum þessa dagana.

Karl Jónsson, 23.4.2007 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband