Konan

                          

 Þegar Guð Skapaði konuna vann hann seint á sjötta degi, þá kom að engill og sagði við hann.  Því að eyða svona miklum tíma í þetta. Og drottinn svaraði. Hefurðu ekki séð upptalninguna á öllu sem þarf að gera til að skapa hana. Hún þarf að vera vatnsheld, en þó ekki úr plasti, hafa meira en 200 hreifanlega hluta sem alla þarf að vera hægt að skipta um, og hún þarf að geta framleitt hvaða mat sem er, hún þarf að geta faðmað mörg börn í einu, og gefið faðmlag sem eitt og sér læknar allt frá skrámu til ástarsorgar. Þetta allt þarf hún að gera og það með aðeins tvær hendur.Engillinn varð mjög hrifinn og sagði. Bara tvær hendur…. Það er ómögulegt  og þetta er bara venjulegt eintak. Þetta er allt of mikil vinna, sem þú klárar aldrei í dag. Geymdu þetta þangað til á morgun og kláraðu hana þá. Það geri ég ekki svaraði drottinn ég er svo nálægt því að fullgera þetta sköpunarverk sem mun eiga sérstakan stað í hjarta mér. Hún læknar sig sjálf þegar hún veikist og hún getur unnið 18 tíma á dag. Engillinn kom nú nær og snerti konuna. En þú hefur gert hana svo mjúka drottinn sagði hann svo.Hún er mjúk, svaraði drottinn, en ég hef einnig gert hana sterka því þú getur ekki ímyndað þér hvað hún þarf að ganga í gegn um og þola.Getur hún hugsað spurði engillinn. Drottinn svaraði, hún getur ekki aðeins hugsað heldur einnig rökrætt og staðið í samningum. Engillinn snerti vanga konunar. Drottinn það lítur út fyrir að sköpunarverkið leki, þú hlýtur að hafa lagt of miklar byrðar á hana. Hún lekur ekki  Þetta eru tár leiðrétti drottinn.Til hvers er það spurði engillinn. Drottinn svaraði,  tárin eru hennar leið til að láta í ljós sorg sína, efa sinn, ást sína, einsemd sína, þjáningu sína og stolt sitt. Þetta hafði mikil áhrif á engilinn sem sagði.. Drottinn þú ert snillingur, þú hefur hugsað fyrir þessu öllu, þessi kona er stórkostleg. Og drottinn svaraði englinum, það er hún svo sannarlega. Konan býr yfir slíkum styrk að mestu karlmenni undrast hann, hún tekst á við hvaða vandræði og getur borið þungar byrðar á herðum sér. Hún hefur í hendi sér hamingju. ást og ætlanir. Hún brosir þegar hana langar að öskra, og hún syngur þegar hana langar að gráta.  Grætur þegar hún er hamingjusöm og hlær þegar hún er hrædd. Hún berst fyrir því sem hún trúir á. Hún berst gegn ranglæti. Hún tekur ekki nei sem gilt svar þegar hún sér aðra lausn. Hún gefur sjálfa sig svo fjölskyldan geti dafnað. Hún fer með vini sína til læknis ef hún óttast um þá. Ást hennar er skilyrðislaus. Hún grætur þegar börnin hennar eru sigursæl. Hún er glöð þegar vinum hennar gengur vel. Hún gleðst þegar hún heyrir af brúðkaupum og barnsfæðingum. Hjarta hennar brestur þegar ættingi eða vinur fellur frá, en hún finnur aftur styrk til þess að takast á við lífið á ný. Hún veit að faðmlög og kossar geta læknað brostið hjarta. Þér hefur tekist hið ómögulega sagði engillinn. Þú hefur skapað fullkomna mannveru. Ekki er hún nú fullkomin svaraði drottinn. Það er aðeins einn galli á henni og hann er ansi stór.

Hún getur ekki lært að það er bannað að ryksuga á laugardögum, á meðan að enski boltinn er.

Segir þetta ekki allt......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hehehehe flott saga ;) .. rakst á bloggið þitt og hafði gaman af að lesa!

kær kveðja frá Ak.

Katrín Dröfn  

Katrín Dröfn (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband