Veri hann bara sem lengst !

 grísinn

Ólafur Ragnar hefur ekkert að gera hér á landi hvort eð er. Eftir að könnun sýndi í síðustu viku að hann hefur aðeins stuðning 1% þjóðarinnar sem leiðtogi þá ætti hann að sjá sóma sinn í að segja af sér. Það hlýtur að segja manninum eitthvað að hans helsti pólitíski andstæðingur í gegn um tíðina Davíð Oddsson fær mun meiri stuðning. Við getum svo öll verið sammála um að ekki er Davíð sá vinsælasti eftir allar þær rógsherferðir sem vinstri menn hafa haldið uppi gegn honum undanfarið.

Það er ekki gott fyrir Ísland á næstu árum að sendiherra útrásarinnar sé þekktasti málsvari hennar á erlendri grundu. Það vita allir sem það vilja hver hlutur forsetans var í að kynna útrásarvíkingana og leggja þeim til gott orð.

Þjóðina vantar alvöru leiðtoga.....


mbl.is Forsetahjónin í Bandaríkjaheimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég held að minnstur skaði yrði af fíflinu, ef hann yrði lokaður inni á bessastöðum. Það risu á mér hárin þegar ég sá að hann væri að fara að ræða um orkumál við fjármálagosa á wall Street.  Það verður einhver djöfulsins dellan sem kemurr úr úr því. 

Jón Steinar Ragnarsson, 21.9.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband