Minnihlutastjórn um ekki neitt.

thumb-down-752911Þá liggur það fyrir eftir tíu daga viðræður (og baktjaldaplott þar áður) að það liggur ekki fyrir neinn listi um hvað á að gera. Hann verður kynntur í næstu viku. Það sem er minnst á í fréttinni er bara almennt orðalag eins og "að slá skjaldborg um heimilin" og "koma atvinnulífinu aftur í gang".

Ég er ansi hræddur um að það eigi eftir að verða saga þessa minnihlutasamkrulls að það muni ekki koma neinu í verk þessa daga sem þau hafa fram að kosningum. Og að endingu þá er það að setja Kolbrúnu Halldórsdóttur í umhverfisráðuneytið það allra versta sem hægt er að gera í ástandi eins og nú er. Það má þá ekki hrófla við þúfu án þess að allt verði vitlaust. Núna dugar ekkert nema að framleiða eins og hægt er.

Sorgleg staðreynd.....


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

láttu ekki svona. það er víst tilgangur með minnihlutastjórninni. núna í kosningunum geta menn slegið sig upp með nafnbótinni, ráðherra.

Fannar frá Rifi, 1.2.2009 kl. 16:56

2 Smámynd: Bjarki Á

Þetta er dæmt til að mistakast hjá þeim

Bjarki Á, 1.2.2009 kl. 17:02

3 identicon

Kemur í ljós.

Jósep Húnfjörð (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 17:52

4 identicon

http://visir.is/assets/doc/XZ57121.DOC

ættir kannski að kíkja á aðra miðla en ruv og moggann!! verkefnaskráin er út um allt þeir eru bara svo bissy við að segja EKKI frá neinu á ríkismiðlunum eru búnir að vera svo upptekknir við að sleikja upp gömlu stjórnina að þeir gleymdu þeirri nýju.. here you go!!

Elín (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband