Hversu blindur getur maður orðið.

svikariBjörn Ingi víkur ekki einu orði að sínum eigin gjörðum í þessu máli öllu. Hann var og er höfuð paurinn. Heldur hann að ef hann talar nógu mikið um hina að þá gleymi allir hans hlut í málinu. Það er ódýr lausn að kenna öllum hinum um.

Þegar Svandís Svavarsdóttir talar um að þeir sem beri höfuðábyrgð eigi að taka pokann sinn, þá hlýtur hún að vera að tala um Björn Inga eins og aðra lykilstjórnendur Orkuveitunnar. Það er ljóst að þessu máli er hvergi nærri lokið og á eftir að verða meirihlutanum erfitt áfram.

Konungur smjörklípunnar.....


mbl.is Björn Ingi: Kannski er byltingarforinginn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ingólfur, þú ert alltaf jafn blindur; "Það er ódýr lausn að kenna öllum hinum um." og meira;  "Heldur hann að ef hann talar nógu mikið um hina að þá gleymi allir hans hlut í málinu."  Hverjir eru búnir að gjamma mest á borgarstjórnarfundum?  Sjálfstæðismenn.  Hverjir eru ALLTAF að kenna öðrum um?  Sjálfstæðismenn  Og hverjir voru hugmyndasmiðirnir að þessu REI-dæmi öllu?  Sjálfstæðismennirnir Guðlaugur Þór og Villi ex-borgarstjóri.

OG ÞÚ Ingólfur værir nú meiri maður ef þú myndir viðurkenna og mótmæla þeim "MEÐVÆGISAÐGERÐUM" sem þinn þingmaður stendur fyrir.  Það er ekki nóg að við eigum ekki að fá að veiða fisk til að vinna og selja, heldur er líka gagngert verið að koma í veg fyrir frekari framþróun í ferðaþjónustu.

Það er leitun að þeim þingmanni sem hefur reinst okkur Vestfirðingum jafn ílla og Einar K. Guðfinnsson.  Þú Ingólfur, hlítur að vera rosalega stoltur af honum.

Sigurður Hreinsson (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 13:56

2 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Þú ættir að kynna þér málið betur Siggi. Þessi lagasettning sem er að fara í gegn núna kemur  til með að styðja við bakið á þeim tveimur ferðaþjónustu fyrirtækjum sem eru starfandi hér á vestfjörðum. Þau hafa allt sitt á hreinu s.s. leyfi, skráningar og fleira. Þetta átt þú að vita sem nefndarmaður í atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar.

Ingólfur H Þorleifsson, 13.11.2007 kl. 21:34

3 identicon

Ingólfur, þakka þér fyrir ábendinguna, ég hef skoðað þetta mál talsvert.  Ég efast ekki um að þessi lagasetning geti komið þeim aðilum vel sem fyrir eru í greininni, en málið er nú ekki alveg svo einfalt.Það er eðlilegt og æskilegt að móta skýrt og samkeppnisvænt umhverfi í kringum sjóstangveiðigeira ferðaþjóustunnar.  Það má vel gera á marga vegu.Hinsvegar hefur kvótasetning í ferðaþjónustu hingað til ekki talist vera æskileg eða líkleg til framþróunar í greininni.  Þessvegna spyr maður sig hver raunveruleg ástæða er fyrir að beita kvótakerfi sjávarútvegsins á þessa grein ferðaþjónustunnar, þar sem augljóst er að verndunarsjónarmið fiskistofnanna eiga ekki við.Óþarfa fjárfestingarkostnaður og annar rekstrarkostnaður er sérstaklega erfiður fyrir nýja aðila í öllum atvinnugreinum.  Og það að gera líklega eina geira ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum sem verið hefur vöxtur í undanfarin ár, að leiguliða hjá stórútgerðum og það á tímum síhækkandi kvótaverðs er beinlínis tilræði við greinina og ber dauðann í sér.Við manni blasir því að tilgangur laganna sé að koma í veg fyrir nýliðun, samkeppni og vöxt greinarinnar.

 PS.  Það er nú líka sumt sem þú ættir að vita sem formaður KFÍ.

Sigurdur Hreinsson (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband