15.2.2010 | 18:05
Að vinna sér inn tíma.
Þar sem að ég hef iðulega haft nóg fyrir stafni, og oft ekki nægan tíma hef ég ákveðið að leggja þessi bloggskrif á hilluna. Ég vill þakka öllum sem hafa lagt leið sína hingað undanfarin ár.
Þeim sem geta ómögulega slitið sig frá mér bendi ég á stórskemmtilega síðu www.123.is/golli
Bestu kveðjur.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2010 | 09:20
Að loknu prófkjöri
Nú þegar prófkjöri okkar sjálfstæðismanna er lokið og maður skoðar úrslitin þá vakna ýmsar spurningar. Prófkjörsnefnd ákvað reglur prófkjörsins út frá prófkjörsreglum flokksins og eftir þeim var unnið. Þessar reglur samþykktu allir þátttakendur. Þar segir m.a. að flokksbundnir sjálfstæðismenn hafi kosningarétt í prófkjörinu. Margir hafa sagt að loka eigi kjörskrá t.d. mánuði fyrir prófkjörsdag. En núna var ákveðið að hafa þetta opið þannig að fólk gæti skráð sig allt til loka kjörfundar. Það opnar á að hægt sé að smala fólki í flokkinn með ýmsum aðferðum. Heyrst hefur að fólki hafi verið boðið að fá hjálp við að skrá sig úr flokknum aftur að loknu prófkjöri. Það eru ekki vinnubrögð að mínu skapi, en ekkert sem bannar fólki að gera það kjósi það svo.
Þegar settar eru reglur þá ber fólki að fara eftir þeim, og ég tel að allir frambjóðendur hafi verið innan þeirra marka. Það að bjóða fólki að ganga úr flokknum strax að loknu prófkjöri er eitthvað sem viðkomandi frambjóðendur verða að eiga við sína samvisku hafi þeir stundað slík vinnubrögð. Upp hafa komið þau sjónarmið að fólk sem gengur í stjórnmálaflokk eigi að vera skuldbundið til að vera í honum ákveðið lengi. Ég er sammála þessum sjónarmiðum og myndi vilja að slíkar reglur yrðu teknar upp.
Nú hlýt ég sem formaður fulltrúaráðsins að gleðjast yfir því að margir vilji ganga í sjálfstæðisflokkinn. Að sama skapi er ég vonsvikinn ef margir ganga úr honum strax aftur. Ég veit að það verður raunin að einhverjir gera það, en aðrir eru komnir til að vera. Það hlýtur að vera verkefni þeirra sem skipa munu lista okkar sjálfstæðismanna að fá þetta fólk til að kjósa flokkinn í vor. Verði það niðurstaðan er ég ekki hræddur við úrslitin, en ég er bara ekki viss um að það gerist. Endanleg kjörskrá hljóðaði upp á 992 flokksbundna sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ. Við fengum 1054 atkvæði í síðustu kosningum. Miðað við þessar tölur þá vinnur Sjálfstæðisflokkurinn stórsigur í vor. En það er langur vegur frá að þetta sé svona auðvelt, það vitum við sjálfstæðismenn.
Nú er kannski auðvelt hjá ykkur lesendur góðir að álykta sem svo að ég sé bara tapsár og því tali ég svona. Vissulega eru það vonbrigði að ná ekki settu marki. Ég stefndi hátt og bauð mig og mín stefnumál fram, og þó að áhugi minn á því að vinna vel fyrir mitt sveitarfélag sé mikill þá er ég ekki tilbúinn að beita hvaða brögðum sem er til að komast í þá aðstöðu. Niðurstaðan var áttunda sæti og vitandi það að ég stóð ekki í hringingum og skipulögðum smölunum þá er ég sáttur við að hafa fengið 375 atkvæði. Það segir mér að tæplega helmingur þeirra sem kusu settu mig í eitthvert sæti. Fyrir það er ég þakklátur.
Ingólfur Þorleifsson....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2010 | 23:41
Þá liggur það fyrir
Mig langar að segja svo margt en geri það ekki. Til hamingju allir sem buðu sig fram. þetta prófkjör fer í sögubækurnar vegna mikillar kosningaþáttöku. Listinn verður sigurstranglegur í vor.
Takk allir 375 sem merktu við mig á kjörseðlinum í dag, þrátt fyrir að hafa ekki fengið símtal.
29. maí........
Bloggar | Breytt 14.2.2010 kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2010 | 23:10
Frábærir strákar sem við getum verið stolt af.
Liðið okkar er nánast búið að tryggja sér sigur í 1. deildinni í körfubolta. Heimaleikur á næsta sunnudag 28 febrúar á móti ÍA og þá mætum við öll og fögnum með strákunum.
Við erum á leið í Iceland Express deildina !!!!
Áfram KFÍ.....
|
Ísfirðingar nálgast úrvalsdeildina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 13.2.2010 kl. 07:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2010 | 17:53
Prófkjör sjálfstæðismanna
Ágæti kjósandi.
Á laugardaginn kemur 13 febrúar velja sjálfstæðismenn á lista sinn með prófkjöri. Ég sækist eftir 2. sæti á listanum . Með því að smella hér getur þú fræðst nánar um mig og mínar áherslur.
Taktu þátt í að móta umhverfi þitt næstu árin. Settu Ingólf í 2. sætið.
X-Golli.....
Bloggar | Breytt 11.2.2010 kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2010 | 09:36
Að niðurlotum komin.
Þessi ríkisstjórn á að fara frá hið fyrsta og hleypa öðrum að. Þeir hafa ekki sýnt neitt sem fær fólk til að trúa því að þeir hafi lausnir á vandamálunum. Það sást best í kosningabaráttunni fyrir rúmu ári þegar þeir vildu ræða allt annað en lausnir á vandanum.
Ég hef sagt það oft áður að á meðan þetta fólk er við völd þá eykst aðeins vandinn, því fyrr sem þau átta sig á því því betra. Samfylkingin er að detta í sama farið og undir lok síðustu stjórnar. Þessi flokkur er samansafn af flokkspólitískum viðrinum og samstaðan er engin. Þegar svo annar eins flokkur kemur inn í spilið þá er ekki von á góðu.
Það næst ekki sátt um nokkurn hlut og það bitnar á allri þjóðinni. Áherslur eru settar á mál eins og ESB og að fyrna kvótann á meðan heimili og fyrirtæki brenna. Staðan er orðin grafalvarleg og stutt í að allt sjóði uppúr. Þetta veit Össur og því reynir hann að berja í brestina. Það er bara ekki nóg´, fólk vill lausnir ekki skítreddingar.
Það er ekkert að gerast......
|
Biðla til Framsóknarmanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.2.2010 | 06:45
Segðu satt Össur
Össur vill að sjálfsögðu ekki kannast við að hafa haft einhverjar innherjaupplýsingar. Hann hafi keypt þessi bréf 1988-1990 og þetta hafi átt að verða lífeyrissjóður fjölskyldunnar. Hann hafi hinsvegar ákveðið að selja þetta þegar hann varð ráðherra. Hann segir að það samrýmist ekki setu í ráðherrastól að eiga stofnfjárhlut í SPRON. Gott hjá honum.
Málið er bara að Össur virðist alveg hafa gleymt því að hann var líka ráðherra 1993-1995 og sá greinilega ekki ástæðu til að selja þessi bréf þá. Hver skildi ástæðan vera fyrir því. Þetta er ekki trúverðugt Össur.
Refurinn lýgur refurinn lýgur......
|
Hagnaður Össurar af sölu stofnfjárbréfa 30 milljónir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2010 | 19:45
Skynsamlegt að hlusta á stjórnarandstöðuna.
Það var nú ekki svo lítið bent á það að Svavar væri ekki hæfur í þetta stóra verkefni. Það er dýrt að ætla að sjá eftir því núna. Þessi vita gagnslausa ríkisstjórn sem nú hefur setið einu ári of lengi hefur slegið á útréttar hendur stjórnarandstöðunnar. Þar á bæ hafa menn komið með hugmyndir og tillögur en forkólfar ríkisstjórnarinnar hafa ekki viljað hlusta.
Nú líður varla sá dagur að ekki komi eitthvað fram sem styrkir það sem stjórnarandstaðan hefur sagt. Miðað við þessi ummæli Jóhönnu þá er ríkisstjórnin að sjá þetta líka, og ekki seinna vænna.
Ég hef sagt það áður og stend við það, ástandið hefur snarversnað síðasta árið og á enn eftir að versna ef fólki ber ekki gæfa til að koma sér saman um þá leið sem er best fyrir þjóðina.
Þjóðin krefst nýrra samninga......
|
Skynsamlegt að fá erlendan samningamann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.2.2010 | 06:43
Útvarp Reykjavík útvarp Reykjavík
Hver kannast ekki við þessi orð úr útvarpi allra landsmanna RUV. Nú hefur í annað sinn á stuttum tíma verið skorið hraustlega niður á þeirri ágætu stofnun og fjölda fólks sagt upp. Enn og aftur verður það raunin að starfssemi á landsbyggðinni verður fyrir barðinu á niðurskurðarhnífnum. Svæðisstöðvar RUV hafa verið að festa sig í sessi undanfarin ár, og eru orðin ómissandi hluti af menningu landsbyggðarinnar og því algerlega óboðlegt að þau séu svo til skorin af á einu augabragði eins og sumir þingmenn Samfylkingarinnar myndu orða það á góðum degi.
Það stefnir því allt í að helstu verkefni okkar á landsbyggðinni næstu árin verði að standa vörð um þau verkefni sem þó hafa náðst út úr höfuðborginni. Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að því hér heima í héraði að fá opinber störf vestur. Sveitarstjórnarfólk hefur lagt á sig mikla vinnu við að fá hingað verkefni og því blóðugt að þessi störf skuli iðulega verða fyrst fyrir barðinu á niðurskurðarhnífnum fræga.
Hverju munum við eiga von á í framtíðinni. Verður það sýslumaðurinn næst eða kannski presturinn. Mun Menntaskólinn verða rekinn frá Reykjavík, eða kannski lagður af. Nú reynir á samstöðu okkar á landsbyggðinni ef ekki á að glatast margra ára vinna. Þeir sem ákveða niðurskurðinn hafa í fæstum tilfellum hugmynd um hversu áhrifin eru mikil á litlum stöðum. Það munar um hvert stöðugildi.
Útvarp Vestfirðir......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2010 | 10:30
Komum saman í verkefni
Í þeim bæ sem ég vil búa í í framtíðinni þurfa að vera þau skilyrði sem fá fólk til að una sátt við sitt. Til að svo verði þarf fólk að geta alið upp börnin sín, komið þeim til mennta og starfa heima í héraði. Við höfum í dag öfluga leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í öllum byggðakjörnum bæjarins og þannig vill ég sjá það áfram. Menntaskólinn er orðin öflug og rótgróin stofnun sem fyrir löngu hefur sannað tilverurétt sinn. Háskólasetur Vestfjarða er svo frábær viðbót sem er að vaxa og mun vonandi verða öflugur háskóli í framtíðinni.
Fólk þarf að hafa atvinnu til að það geti verið hér áfram. Við eigum hér í Ísafjarðarbæ öflug fyrirtæki sem eru að gera mjög góða hluti. Fái þau að gera það áfram án afskipta ríkisvaldsins í formi skattahækkana, fyrninga á tekjumöguleikum eða annarra tilskipana þá óttast ég ekki framtíð þeirra. Fjölmörg tækifæri eru fyrirsjáanleg á næstu árum í ferðaþjónustu og þar eru Vestfirðir í sérstöðu. Í okkar fallega landshluta eru margir athyglisverðir hlutir að gerast. Fólk er uppfullt af hugmyndum og krafti, og oft þarf ekki mikla hjálp frá yfirvöldum til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd.
Fólk þarf líka að hafa afþreyingu og áhugamál til að una sátt við sitt. Í Ísafjarðarbæ eru fjölmörg tækifæri til íþróttaiðkunar og útivistar. Mjög öflugt barna og unglingastarf er rekið í íþróttafélögum bæjarins. Þar er hægt að velja um hinar ýmsu greinar fyrir börnin okkar til að stunda. Skíðasvæðið er eitt það glæsilegasta í Evrópu og hefur vakið athygli víða. Tveir frábærir golfvellir eru í bænum og fjöldi fólks sem stundar þá skemmtilegu íþrótt. Göngustígur úr Holtahverfi og út í bæ er mikið notaður, og nú er stutt í að göngustígur út í Hnífsdal verði að veruleika. Sundlaugar, sparkvellir og Íþróttahús eru í öllum byggðakjörnum bæjarins. Bæjaryfirvöld hafa komið myndarlega að þessum málaflokki á undanförnum árum, og eiga að gera svo áfram.
Ísafjarðarbær er sveitarfélag sem á mikla möguleika á næstu árum. Fólk er farið að flytja heim aftur og kemur með aukinn kraft inn á svæðið. Leyfum þessum krafti að taka okkur inn í framtíðina og látum hann skapa okkur ný tækifæri til að vaxa og dafna. Verum óhrædd við að skoða nýjar hugmyndir og fara ótroðnar slóðir. Með opnum huga og jákvæðni getur fólk gert ótrúlega hluti.
Hlutverk bæjarfulltrúa á að vera það að vinna fyrir fólkið í bænum. Við eigum að kappkosta að reka bæinn og stofnanir hans á sem hagkvæmastan hátt, en veita áfram bestu þjónustu til íbúanna. Allir íbúar eiga að vera jafnir óháð búsetu. Stjórnsýslan á að vera opin og gagnsæ. Bæjarfulltrúar og helstu stjórnendur bæjarins eiga að vera aðgengilegir fyrir íbúana til að koma sínum hugmyndum á framfæri.
Komum saman í það verkefni kjósandi góður að gera bæinn okkar að þeim besta á landinu hvað lífsgæði varðar. Látum verkin tala og vekjum athygli út fyrir héraðið. Ég er tilbúinn í þá vinnu með ykkur.
Þess vegna óska ég eftir ykkar stuðningi í 2. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna 13 febrúar n.k.
Ingólfur Þorleifsson.
Grein á bb.is....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Anna Kristinsdóttir
Ágúst Ásgeirsson
Ármann Kr. Ólafsson
Ársæll Níelsson
Ásta Möller
Baldur Smári Einarsson
Birgir Ármannsson
Bjarni Harðarson
Bjarni Kjartansson
Borgar Þór Einarsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Brynja skordal
Bwahahaha...
Dóra litla
Einar Kristinn Guðfinnsson
Elliði Vignisson
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Eyþór Arnalds
Fannar frá Rifi
Friðrik Hansen Guðmundsson
Gisli Freyr Valdórsson
Gísli Blöndal
Gló Magnaða
gudni.is
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Gunnar Þórðarson
Halldóra Hjaltadóttir
Hallgrimur Viðar Arnarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Helga Margrét Marzellíusardóttir
Helgi Jónsson
Helgi Kr. Sigmundsson
Herdís Sigurjónsdóttir
Hlynur Kristjánsson
Ingi Þór Ágústsson
Ingvi Hrafn Jónsson
Jóhann Waage
Jón Snæbjörnsson
Jón Svavarsson
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Lilja Einarsdóttir
Marta
Morgunblaðið
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Rannveig Þorvaldsdóttir
Reynir Jóhannesson
Róbert Guðmundur Schmidt
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigurjón Sigurðsson
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
Sólveig Birgisdóttir
Stefán Friðrik Stefánsson
Unnur Brá Konráðsdóttir
Vefritid
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Örvar Már Marteinsson